Framhald þingfundar

123. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 16:38:00 (5406)

     Kristín Einarsdóttir :
    Virðulegur forseti. Við höfum verið að ræða þingmál í dag, ekki þingmál almennra þingmanna heldur ríkisstjórnarinnar og ég veit ekki betur en við séum enn að því. Ef það hefur verið meiningin að halda svo lengi áfram vegna þess að verið er að liðka til fyrir þingmálum þingmanna sem eru búin að bíða, m.a. mál nr. 28 allt frá því í nóvember, þá ætti auðvitað að taka þau fyrr á dagskrá. En þessi fundahöld eru ekki til þess, við erum að ræða hér stjfrv. sem komu fram fyrir örfáum dögum.