Skipulag á Miðhálendi Íslands

124. fundur
Föstudaginn 10. apríl 1992, kl. 10:37:00 (5417)

     Guðni Ágústsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Það kann að vera að hæstv. félmrh. komi hér innan stundar en ég legg áherslu á að félmrh. verði við þessa umræðu því þetta snertir mjög hagsmuni sveitarfélaga og gengur í berhögg við yfirlýsingu félmrh. um stækkun sveitarfélaga, aukin völd sveitarfélaga o.s.frv. Ég fer því fram á það að hæstv. forseti hafi samband við félmrh. og geri honum þau boð að þess sé vænst að hann verði við þessa umræðu.