Árni M. Mathiesen:
Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið hjá hv. 2. þm. Norðurl. v. hefur þingflokkur Sjálfstfl. samþykkt að frv. þetta væri lagt fram á þessu þingi einungis til kynningar og til að fá um það umræður í þjóðfélaginu. Þingflokkurinn hefur ekki samþykkt efni frv. Ég fagna því hins vegar að umhvrh. hefur í hyggju að taka á þessu máli því að það er einsýnt að það er nauðsynlegt. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að skipuleggja Miðhálendið og ég vil í því sambandi undirstrika það að ákvörðun um það að ákveðin svæði skuli óbyggð er líka skipulag. En mér sýnist að á þessum punkti skilji leiðir, þ.e. með mér og umhvrh., en ég tel óhjákvæmilegt að frv. verði tekið til endurskoðunar áður en það verður lagt fram til lokaafgreiðslu.
Ég er í megindráttum ósammála þeirri leið sem ráðherrann hefur valið til þess að leysa þetta vandamál. Ég er á móti því að ráðuneyti taki sér vald og verkefni sveitarstjórnar á einhverju tilteknu landsvæði og ég er á móti því ofurvaldi og þeim íhlutunarrétti sem í þessu frv. er gert ráð fyrir að ráðherrann hafi hvað þetta varðar. Ég tel að þau verkefni sem hér um ræðir eigi heima hjá sveitarstjórnum og eigi að vinnast sem líkast því sem gerist almennt í skipulags- og byggingarmálum á landinu. Ráði hins vegar einstök sveitarfélög ekki við þessi verkefni væri rétt að reikna með því að þau hefðu um það samstarf. Tel ég að það sé í anda þess sem er að gerast hér á landi og þeirrar umræðu sem hefur verið í sveitarstjórnarmálum. Vanræki hins vegar sveitarstjórnir einar sér eða í tilskildu samstarfi við aðra að skipuleggja hálendið eða fylgja þar eftir málum á réttan og löglegan hátt, þá ber ríkinu að taka við málinu og grípa þar inn í. Sé hins vegar um sérstaklega viðkvæm svæði að ræða eða náttúruperlur, þá tel ég að það væri ráð að friða þau svæði sérstaklega og gera að þjóðgörðum eða friðlöndum og fela þau Náttúruverndarráði til umsjónar.
Hv. umhvn. mun væntanlega taka þetta mál til ítarlegrar athugunar og leita umsagna og þar sem ég á sæti í þeirri nefnd og mun taka þátt í því starfi ætla ég ekki að tefja umræðurnar nú með því að fara nákvæmar í þetta mál. Ég læt hins vegar í ljós þá ósk að nefndin muni finna betri lausn á þessum vanda en fram kemur í frv.