Guðmundur Þ Jónsson
:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða mikið frv. sem er til umræðu heldur aðeins að fá að leggja orð í belg vegna þeirra orða sem féllu um Atvinnuleysistryggingasjóð af því vitnað var til 18. gr. laga um Atvinnuleysistryggingasjóð og hvort sú grein skaraðist ekki við frv. sem er til umræðu. Ég ætla að láta í ljós þá skoðun mína að ég held að svo sé ekki vegna þess að í þeim tilfellum, sem ekki eru mjög mörg, að greitt hafi verið úr Atvinnuleysistryggingasjóði til námskeiða út á þessa grein, hefur það verið fyrst og fremst, eins og kom fram í máli ráðherra, til að styrkja námskeið fyrir atvinnulausa og aðstoða þá við að koma sér í vinnu aftur. Einnig hefur verið greitt í nokkrum tilfellum til fyrirtækja sem hafa verið að taka upp nýja starfshætti eða tileinka sér ný vinnubrögð og hafa þurft að þjálfa upp starfsfólk sitt. Í sumum tilfellum hefur verið um að ræða að fyrirtæki hafi flust t.d. úr Reykjavík út á land þar sem óvant fólk hefur komið til starfa. Í einstaka tilfellum hafa þau fengið styrki til að reka námskeið í því formi eða kosta kennslu eða tilsögn á þeim vettvangi. Í frv., sem hér er til umræðu, er náttúrlega verið að tala um námskeið eða nám fyrir fólk sem er í fullri vinnu, fastráðið í fyrirtækjunum, og bæði starfsfólk og fyrirtækin koma að málinu. Þarna er því ekki um sama hlutinn að ræða og Atvinnuleysistryggingasjóður hefur ekki gert mikið af þessu enda ekki ýkja mikið sótt í það satt að segja en í nokkrum tilfellum hefur þó umsóknum þar að lútandi verið hafnað.