Tilkynning um utandagskrárumræðu

125. fundur
Mánudaginn 13. apríl 1992, kl. 13:30:02 (5480)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill geta þess, áður en gengið er til dagskrár, að hér mun fara fram utandagskrárumræða og er reiknað með að hún hefjist klukkan hálffjögur í dag. Það er hálftímaumræða sem fer fram að beiðni hv. 10. þm. Reykv. og er um Fæðingarheimili Reykjavíkur.