Björn Bjarnason
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Eins og ég gat um í ræðu minni er það tillaga flm. að Dómarafélag Íslands, lagadeild Háskóla Íslands og Lögmannafélag Íslands annist að tilnefna menn í þessa mikilvægu nefnd. Ég tel að þeir menn sem hæstv. utanrrh. hefur tilnefnt til að kanna þetta mál séu algerlega óháðir og óhlutdrægir og séu vel fallnir til þess að komast að skynsamlegri og óhlutdrægri niðurstöðu í þessu máli og ég óttast ekki álit þeirra eða nokkurra annarra manna um þetta. Ég tel að þeir menn sem hæstv. utanrrh. hefur tilnefnt séu mjög vel hæfir og miklu hæfari en menn sem Dómarafélagið, lagadeildin og Lögmannafélagið hefðu komið með þótt það yrði gert í nafni Alþingis. Ég tel raunar fráleitt

að Alþingi sé að fela þessum þremur aðilum að koma fram í sínu nafni í þessu efni.