Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Í tilefni af ræðu hv. 4. þm. Austurl. vil ég gera þá athugasemd að ég tel eðlilegast að þeirri þáltill. sem nú er til umræðu og fjallar um það að setja á fót sérstaka nefnd til þess að kanna hvort samningur stríði gegn íslenskri stjórnskipun, verði vísað til allshn. þar sem hún fái meðferð.
Að öðru leyti vil ég segja að auðvitað vekur það á vissan hátt athygli að hv. 4. þm. Austurl. talar af miklum tilfinningahita um þetta mál og ýmsir aðrir m.a. hv. 9. þm. Reykv. Hins vegar sér 2. flm. þessarar ályktunartill., hv. 7. þm. Reykn. Steingrímur Hermannsson, ekki ástæðu til þess að vera viðstaddur umræðuna. Það bendir þannig margt til þess að hann telji ekki miklu varða að till. nái fram að ganga. Enda tel ég langeðlilegast að hafa þann framgangsmáta sem hæstv. utanrrh. hefur lagt til að verði viðhafður í þessu máli.