Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég kem aðeins til að þakka hæstv. flm. fyrir að hafa lagt fram þessa till. til þál. Hún er vissulega orð í tíma töluð. Ég þarf ekkert að rekja frekar þær ástæður sem liggja að baki, þær hafa komið fram í máli flm. á undan mér. Þetta misræmi, sem er í gangi á milli sveitarfélaga í landinu, er með slíkum eindæmum að nauðsynlegt er að vekja athygli á því þannig að eitthvað verði gert í framhaldi af þeirri athugun.
Ég vil líka vekja athygli á því að þær upphæðir sem rætt er um að ríkið greiði vegna dagvistarheimila eru hærri en sú upphæð sem hugsanlega sparast í heilbrigðiskerfinu með breytingum á rekstri sjúkrastofnana á Reykjavíkursvæðinu á þessu ári. Það sem árlega er greitt af ríkinu vegna dagvistarstofnana í Reykjavík er hærri upphæð en sú upphæð sem þurft hefði til þess að halda óbreyttum rekstri heilbrigðis- og sjúkrastofnana á Reykjavíkursvæðinu.
Ég vona svo sannarlega að þessi tillaga fái þinglega meðferð og vænti þess að sjálfsögðu þar sem hér er um tvo stjórnarþingmenn að ræða sem flytja hana og ég veit að stjórnarandstaðan, a.m.k. þeir sem hér hafa talað, eru henni hlynntir, en það væri hins vegar fróðlegt að heyra í þingmönnum Reykjavíkur til þess að heyra hvaða skoðun þeir hafa á þessu máli.