Lánasjóður íslenskra námsmanna

127. fundur
Mánudaginn 27. apríl 1992, kl. 13:48:00 (5607)

     Kristín Ástgeirsdóttir (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég vil taka undir beiðni síðasta ræðumanns um að málinu verði frestað þar til þessar upplýsingar liggja fyrir. Þær snerta vissulega mikilvægan þátt í málinu og ég held að það mundi ekki skaða umræðuna þó að málið fengi að bíða til morguns eða hvenær sem það annars kæmi á dagskrá. Ég get fyrir mitt leyti fallist á að mælt verði fyrir áliti meiri hlutans ef mönnum þykir mjög liggja á því en það má ljóst vera að við sem tilheyrum stjórnarandstöðunni leggjum mjög mikla áherslu á að fá þessar upplýsingar áður en umræðan hefst.