Frumvörp um Sementsverksmiðju ríkisins og Síldarverksmiðjur ríkisins

129. fundur
Miðvikudaginn 29. apríl 1992, kl. 14:01:12 (5660)


     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Að gefnu tilefni og vegna umræðna um þingsköp vill forseti segja frá því að nú þegar hafa 6 hv. þm. fjallað um þingsköp og þetta sérstaka mál. Segja má að fulltrúar allra flokka hafi mælt fyrir sjónarmiðum sínum og vil ég láta þá von í ljós að sjónarmið þeirra séu rækilega komin fram og að starfsemi þessara tveggja nefnda megi taka mið af þeim sjónarmiðum og þeim umræðum sem nú hafa þegar farið fram. Enn eru tveir, jafnvel þrír og kannski fleiri á mælendaskrá. Ég vil taka fram að það er verið að fjalla um þingsköp og í ljósi orða minna óska ég eftir að hv. þm. sem eiga eftir að fjalla um þingsköp geri það með þeim hætti eins og þeim er frekast unnt.