Frumvörp um Sementsverksmiðju ríkisins og Síldarverksmiðjur ríkisins

129. fundur
Miðvikudaginn 29. apríl 1992, kl. 14:43:53 (5676)


     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla bara að þakka hv. þm. fyrir hamingjuóskirnar, ég gat ekki annað en þakkað honum fyrir þær og óska honum jafnframt til hamingju með að hafa loksins skilið það sem hér var sagt. Ég skal fúslega síðar á þingtímanum verða við hans ósk um að skýra frekar hvað í þessum plöggum stendur sem og í öðrum plöggum ef hann óskar sérstaklega eftir því og hann er hjálparþurfi.