Lánasjóður íslenskra námsmanna

129. fundur
Miðvikudaginn 29. apríl 1992, kl. 22:36:02 (5693)


     Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er ekki tekið tillit til búsetu og það er ekki tekið tillit til ferðakostnaðar. Og við vitum ekki enn hvort það á að lána fyrir skólagjöldum og við vitum ekki enn hvort það á að greiða skólagjöld eftir á. Svo margt er nú óljóst og svo margt er neikvætt við frv., eins og það liggur fyrir, svo að ég tali ekki um það sem ég lagði allra mesta áherslu á í mínu máli en það var eftirágreiðslan. Mér finnst því alveg út í hött að halda því fram að við séum orðin ánægð með þetta frv. eins og það liggur fyrir. Ég trúi því enn að það verði tekið tillit til okkar málflutnings og það verði gerð breyting á frv. áður en það verður samþykkt sem lög frá Alþingi.