Svavar Gestsson
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 18. þm. Reykv. fyrir að koma fram með þetta mál og ég tel reyndar að það hefði fyrir löngu þurft að ræða hér afmæli kristnitökunnar og hvernig að þeim málum verður staðið. Ég ræddi þessi mál árið 1989 við þáv. forsrh., forseta Íslands og fleiri og taldi þá og tel enn að það þurfi að undirbúa þetta og gera það með dálítið öðrum hætti en menn tala um að gera núna. Þetta er satt að segja fjarskalega, venjulegt hefðbundið og ég leyfi mér að segja, virðulegi forseti, ófrumlegt sem menn hafa látið sér detta í hug í tengslum við þessi hátíðahöld.
Kristnitökuafmælið er með ákveðnum hætti þjóðmenningarafmæli á Íslandi og menn eiga að umgangast þetta afmæli með þeim hætti, með öðrum orðum á að fá þjóðina alla með einhverjum hætti til að taka þátt í því að minnast þess hvernig kristnitakan kom hér og hvaða áhrif hún hefur haft fyrir íslenska þjóðmenningu. Það á að gera í skólum og víðar. Það á ekki að gera með því að fara að efna til einhvers allsherjar trúboðs í hverjum einasta skóla og skólastofu í landinu heldur til þess að ræða það og fá fólk til að skilja hvað þessi þáttur hefur verið þýðingarmikill og hvað hann hefur haft mikil áhrif á heildarþróun þjóðmenningar á Íslandi. Þess vegna skora ég á nefndina og hæstv. forsrh að láta sér detta eitthvað gott í hug þó að það þurfi í sjálfu sér ekki að verða allt gott sem frá nefndinni kemur.