Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal)
:
Herra forseti. Ég hef greinilega mistalað mig áðan. Þessi nefnd hefur verið skipuð og hefur verið að störfum í nokkra mánuði og hefur auðvitað samband. Í henni eiga sæti helstu aðilar sem koma að þessum málum og eins og ég sagði áðan er gert ráð fyrir því að tilraunaútsendingar geti hafist þegar í árslok, þannig að verkinu miðar vel áfram.
Ég tel líka nauðsynlegt að taka það fram að sjómenn og útgerðarmenn, raunar líka þeir sem eru flugrekendur, töldu sig ekki hafa hagsmuni af því að lórankerfið yrði rekið áfram á þeim tíma sem ákvörðun var tekin. Hitt er rétt, sem hv. þm. segir, að eftir að sú ákvörðun var tekin hafa okkur borist ábendingar sem eru gagnstæðar því sem áður var og er það mál auðvitað til athugunar í samgrn.
Í þessum málum hefur sem sagt verið í fyrsta lagi gætt ýtrustu varkárni, í öðru lagi haft fullt samráð við alla sem að málinu koma og í þriðja lagi hefur verið tryggt fjármagn til þess að leiðréttingarkerfi fyrir GPS geti orðið tilbúið í tíma, þannig að fiskiskipaflotinn geti lagað sig að því.