Röð mála á dagskrá og viðvera ráðherra og stjórnarþingmanna

131. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 16:05:04 (5791)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill taka fram vegna þeirrar umræðu sem hér hefur orðið að sá háttur sem hafður er á umræðum í dag er eftir samkomulagi sem gert var við formenn þingflokka. Forseti telur sig knúinn til að geta þess og ítreka að sá háttur er ekki á nokkurn hátt annar en mjög oft hefur verið.