Hafnalög

131. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 17:08:50 (5803)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti þakkar hv. 2. þm. Vestf. fyrir þá yfirmáta miklu virðingu sem hann hefur sýnt þeirri konu sem gegnir þessu embætti með því að hún er hafin yfir allt kynferði í hans ávarpi og hann hefur aldrei efast um hvers kyns hún væri. En forseta fannst samt sem áður vera orðin ærin ástæða til að benda á --- og þá ekki síst vegna þess að í prentuðum þingtíðindum kemur ætíð fram að það sé ,,herra forseti`` sem nú sitji í stólnum --- að það væri kannski ekki endilega karl heldur gæti kona alveg eins gegnt því embætti. En væntanlega er þá útrætt um það mál sem hér hefur verið rætt undir forminu gæsla þingskapa.