Guðmundur Hallvarðsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er tvennt sem mér finnst sérstaklega vont að hv. síðasti ræðumaður skyldi ekki hafa komið neitt inn á. Í fyrsta lagi það að ég hef kannski komið heldur við einhverja þegar ég var að lesa yfirlýsinguna varðandi ákvörðun fjármagns frá Alþingi næstu þrjú árin. Það er kannski víðar í fleiri kjördæmum sem slík skipan hefur verið á gegnum árin. Kannski er þetta þekkingarleysi mitt og einfaldleiki en nýjum þingmanni kemur það mjög sérkennilega fyrir sjónir að þeir sem setjast nú á Alþingi skuli vera bundnir af samþykktum þingmanna sem hafa farið héðan og slíkt skuli gilda næstu þrjú árin.
Aðeins varðandi það líka sem ég hefði gjarnan viljað fá að heyra, þ.e. um skattalega meðferð á þeim hlutafélögum sem væntanlega yrðu stofnuð í sambandi við hafnamál eða hafnir sem yrðu gerðar að hlutafélögum en nytu jafnframt ríkisframlags.
Varðandi slippmálið hér í Reykjavík. Síðasti ræðumaður kom inn á það að Reykjavíkurhöfn hafi ekki veitt neitt fjármagn til að styrkja Slippfélagið í Reykjavík. Þess ber þó að geta að Reykjavíkurhöfn er hluthafi í Slippfélaginu, sem nú heitir Stálsmiðjan hf., og styrkir það óbeint með því hlutfé sem þar er. Ég veit heldur ekki til þess að Akureyrarhöfn hafi styrkt skipasmíðaiðnaðinn þar. Ef þar hefur vantað aðstoð þá hefur verið leitað í ríkiskassann.
Tímans vegna ætla ég ekki að ræða um fleiri mál en ég vil þó segja það að lokum að það er nokkuð hart að standa frammi fyrir þeim staðreyndum að Reykjavíkurhöfn hefur hagrætt og gert hvað hún hefur getað til þess að sinna byltingu á sviði flutningamála. Það hefur orðið bylting þar á og Reykjavíkurhöfn hefur mætt því af kostum og gæfni sem hefur leitt til lægra vöruverðs sem hefur komið öllum landsmönnum til góða en með þessari ákvörðun um 25% vörugjald er verið að taka það af og það er mál sem er óviðunandi.