Innflutningur dýra

131. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 18:56:30 (5816)

     Frsm. landbn. (Árni M. Mathiesen) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. hv. landbn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra.
    Nefndin hefur fjallað um frv. Umsagnir bárust frá Búnaðarfélagi Íslands, Dýralæknafélagi Íslands og yfirdýralækni. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.
    Níu þingmenn standa að nál. Kristín Ástgeirsdóttir skrifar undir með fyrirvara og Magnús Jónsson í forföllum Sigbjarnar Gunnarssonar en aðrir nefndarmenn eru Egill Jónsson, Árni M. Mathiesen, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Guðni Ágústsson, Einar K. Guðfinnsson, Eggert Haukdal og Ragnar Arnalds.