Fullvinnsla botnfiskafla um borð í veiðiskipum

132. fundur
Mánudaginn 04. maí 1992, kl. 13:59:04 (5822)

     Frsm. sjútvn. (Matthías Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Ég biðst velvirðingar á því að mér láðist að geta þess að fulltrúi Kvennalistans, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, sat fund sjútvn. sem áheyrnarfulltrúi og er hún efnislega samþykk áliti nefndarinnar.