Forseti (Sturla Böðvarsson) :
Vegna athugasemda hv. 2. þm. Vestf. vill forseti taka fram að að sjálfsögðu verður tekið tillit til þeirra athugasemda sem hv. þm. hafði fram að færa og mun forsætisnefnd skoða þær. Vegna skýrslu þeirrar sem þingmaðurinn nefndi frá hæstv. utanrrh. skal það tekið fram að sú skýrsla er væntanleg allra næstu daga.