Óafgreidd þingmál

132. fundur
Mánudaginn 04. maí 1992, kl. 19:14:00 (5867)



     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég þakka forseta fyrir að bregðast vel við og svara athugasemdum um þingsköp. Því miður hefur það of oft komið fyrir að forsetar sitja bara hugsi og hljóðir. En hér var gefið svar sem ég tel að ég megi vel við una og fyrir það vil ég þakka, hæstv. forseti.