Hagsmunir íslensks landbúnaðar og EES-samningurinn

133. fundur
Þriðjudaginn 05. maí 1992, kl. 14:32:53 (5903)



     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Þau atriði sem hv. þm. vék að og annað sem varðar samning okkar við hið Evrópska efnahagssvæði eru að sjálfsögðu í athugun, nákvæmri athugun í landbrn. og eins og ég sagði hefur verið haft fyllsta samráð við bændasamtökin um hvaðeina í þeim efnum. Ég vil að þetta komi alveg skýrt fram.