Viðlagatrygging Íslands

133. fundur
Þriðjudaginn 05. maí 1992, kl. 14:47:32 (5905)


     Finnur Ingólfsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Fulltrúar Framsfl. í heilbr.- og trn. standa að brtt. sem fulltrúar stjórnarflokkanna í heilbr.- og trn. flytja. Það er alveg rétt að málið hefur verið lengi til umfjöllunar í nefndinni. Má færa rök fyrir því að ýmislegt hefði mátt skoða frekar í meðferð málsins þar. Hins vegar eru gerðar verulegar breytingar með þeim brtt. sem eru fluttar og að okkar mati hefur náðst samkomulag við þá aðila er málið snertir og við styðjum því brtt. sem þarna eru fram komnar.