Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég get með engu móti á það fallist hjá hv. 5. þm. Vestf. að í 18. gr. sé linkulega tekið á samkeppnishömlum. Þvert á móti get ég fullvissað hv. þm. um það að þessi ákvæði eru harðari og strangari en yfirleitt er að finna í löggjöf nágrannalanda okkar. Hitt er svo alveg sjálfsagt mál að við athugun málsins í þinginu verði einmitt hugað að því hvort þetta dugi til þess að gera það sem gera þarf til þess að tryggja hagsmuni neytenda og til þess að tryggja sem besta nýtingu framleiðsluþáttanna í landinu sem er að sjálfsögðu markmið þessa lagafrv.