Lánasjóður íslenskra námsmanna

133. fundur
Miðvikudaginn 06. maí 1992, kl. 00:04:51 (5936)


     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
     Hv. 16. þm. Reykv. óskar að bera af sér sakir.
    Ég vil upplýsa hv. 16. þm. Reykv. um það að ströng ákvæði eru í þingsköpum um umræður um andsvör. Í þeim er ekki ætlast til þess að þau megi lengja með því að bera af sér sakir og þar með lengja þessar umræður um andsvör. En ég hafði lýst því yfir að andsvörum væri lokið en hv. þm. ætlar að nýta sér þann rétt sem hann hefur að bera af sér sakir og gerir hann það nú. En ég óska eftir því að framvegis taki hv. þm. tillit til þessara þingskapa um andsvör.