Lánasjóður íslenskra námsmanna

133. fundur
Miðvikudaginn 06. maí 1992, kl. 00:05:00 (5937)


     Guðmundur Hallvarðsson :
    Herra forseti, ég skal taka fullt tillit til þess.
    Hér er verið að bera mér það á brýn að ég sem stjórnarmaður í Lífeyrissjóði sjómanna fylgist ekki með því sem er að gerast. Ég vildi aðeins benda hv. 14. þm. Reykv. á að það er algjör kórvilla hjá henni að það sé verið að biðja um þessa breytingu á Lífeyrissjóði sjómanna vegna vangoldinna iðgjalda frá útgerð. Það er alrangt.