Prentun EES-samningsins

134. fundur
Miðvikudaginn 06. maí 1992, kl. 13:42:20 (5949)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti getur ekki svarað spurningum sem þingmaðurinn bar fram og hefði frekar á að beina til utanrrn. þar sem þessi gögn, sem hv. þm. var með hér í ræðustóli, koma frá utanrrn. en hafa ekki borist sem þingskjal enn þá til þess að útbýta í þingsal. En að því kemur væntanlega innan tíðar. Að öðru leyti vill forseti fullvissa hv. þm. um að hér mun að sjálfsögðu allt verða gert til þess að greiða fyrir því að þingmenn hafi sem besta aðstöðu til að vinna að þessu máli og kynna sér það þegar þar að kemur. Öðruvísi getur forseti ekki svarað hv. þm. á þessari stundu.