Prentun EES-samningsins

134. fundur
Miðvikudaginn 06. maí 1992, kl. 13:45:27 (5951)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti ítrekar það að þessi þskj. hafa ekki borist til þingsins en eftir því sem forseti veit best munu þau vera í prentun og undir eins og þau koma úr prentun og berast þinginu þá verður þeim að sjálfsögðu útbýtt. Forseti ítrekar það enn á ný að áhersla mun verða lögð á að greiða eins vel fyrir þessu máli og mögulegt er til að auðvelda þingmönnum umfjöllun um það.