Lánasjóður íslenskra námsmanna

134. fundur
Miðvikudaginn 06. maí 1992, kl. 15:10:46 (5967)



     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Nei, það er ekki hægt að þétta greiðslurnar með ákvæðum lánasjóðsins, en skuldarinn getur greitt hraðar en segir í skuldabréfinu. Ég tók það fram áðan.
    Ég get því miður ekki svarað fyrri spurningunni um það hvernig mönnum kunni að ganga að fá ábyrgðarmenn á bankalánin. ( GHelg: Ég get svarað því, það mun ganga illa.)