Jón Helgason :
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir þessa fsp. Það er vissulega mikilvægt að fá upplýsingar og fylgjast með því sem er að gerast fyrir utan 200 mílna landhelgina. Ég vil þó fyrst og fremst leggja áherslu á að ég held að óhjákvæmilegt sé að nú verði þegar gerðar allar þær ráðstafanir sem við getum til verja þá hagsmuni sem við eigum þarna því það er svo mikið í húfi. Það hefur komið fram hér hve löndun á þeim fisktegundum sem þarna er að finna hefur aukist mikið í Frakklandi. Ég held að yfirvofandi sé svo gífurleg ásókn í þessi mið að við verðum að verja þau nú þegar. Mér var t.d. sagt nýlega frá því að fjögur þús. tonna togari hafi verið seldur frá Póllandi til Portúgals fyrir aðeins eina milljón dollara. Auðvitað er verið að kaupa þessi skip til að beita þeim á mið sem liggja utan við þá landhelgi sem ekki er varin. Ég held að þarna sé um gífurlegt hagsmunamál að ræða fyrir okkur og að við þurfum að bregðast skjótt við.