Skipaútgerð ríkisins

136. fundur
Fimmtudaginn 07. maí 1992, kl. 15:05:35 (6066)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Af sérstökum ástæðum hefur forseti fallist á að gera örstutt hlé á þessari umræðu áður en næsti maður á mælendaskrá tekur til máls og verður tekið fyrir 12. dagskrármálið, Ríkisreikningur 1989. Síðan verður umræðu um þetta dagskrármál haldið áfram. Það er gert að ósk viðkomandi aðila og í góðu samþykki með þeim og væntir forseti að ekki verði gerðar athugasemdir við það þó að þetta sé kannski ekki góð vinnutilhögun samkvæmt dagskránni.