Skipaútgerð ríkisins

136. fundur
Fimmtudaginn 07. maí 1992, kl. 16:22:03 (6082)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þessi umræða er komin inn á skemmtilegar brautir og forvitnilegar. Ég var nú síðast spurður að því hvort menn sem vinna við bókhaldsstörf og uppgjör í fyrirtækjum, sem verið er að leggja niður, hafi umboð til þess að skrifa undir sölu á eignum fyrir hönd ráðherra. Svo er að sjálfsögðu ekki, síður en svo.
    Ég sé hins vegar ekki ástæðu til að elta ólar við það sem hv. þm. sagði fyrir mörgum mánuðum og var þá fullsvarað og mun ekki endurtaka þær umræður í dag.