Lánasjóður íslenskra námsmanna

136. fundur
Fimmtudaginn 07. maí 1992, kl. 20:53:00 (6111)


     Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hef ekki heyrt þá ræðu áður sem ég flutti, ég vil byrja á að taka það fram. (Gripið fram í.) Ég hef hlustað á alla umræðuna en ég held að það hafi komið fram misskilningur hjá hæstv. ráðherra þegar hann talar um að 50 millj. hafi staðið út af varðandi ofgreidd lán í árslok. Samkvæmt upplýsingum sem ég hef eru það 50 millj. sem stóðu út af að vori á námsárinu 1990--1991 en í árslok voru það ekki nema liðlega 8 millj. sem ekki höfðu skilað sér. Þarna erum við ekki með sömu tölurnar greinilega og það verður þá að koma í ljós síðar hvort okkar hefur á réttu að standa.