Lánasjóður íslenskra námsmanna

136. fundur
Fimmtudaginn 07. maí 1992, kl. 23:15:38 (6124)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. þm. Anna Ólafsdóttir Björnsson sagði að einhver fyrirheit af einhverju tagi hafi verið gefin um breytingu á reglunni um eftirágreiðslu. Ég sagði að mér þætti sjálfsagt milli umræðna að sýna hv. þm. sem ég var þá að tala við, Finni Ingólfssyni, hvað slík breyting þýðir og ég vil ekki að þessi orð mín séu túlkuð sem eitthvert loforð um að þessari reglu verði breytt. Það vil ég ekki. Þetta er í þriðja skipti sem ég segi þetta og ég nenni satt að segja ekki að koma upp einu sinni enn ef haldið verður áfram að rangtúlka það sem ég sagði.