Lánasjóður íslenskra námsmanna

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 12:15:08 (6143)


     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
    Virðulegi forseti. Nái sú brtt. sem minni hluti menntmn. leggur hér fram við 6. gr. frv. ekki fram að ganga standa námsmenn andspænis því nú í haust að engin lán verða greidd út úr Lánasjóði ísl. námsmanna. Þetta samsvarar auðvitað því að námslán muni ekki

aðeins bera 1% vexti heldur markaðsvexti á hluta námstíma. Þess vegna hlýt ég að undirstrika það mjög og leggja á það áherslu við þingmenn stjórnarflokkanna að þeir hugsi sinn gang nú á milli 2. og 3. umr., skoði þetta mál og veiti brtt. um málið brautargengi við 3. umr. En ég segi að sjálfsögðu já við þessari tillögu.