Jón Helgason
:
Hæstv. forseti. Í grg. með þessari grein, 6. gr. frv., segir að gert sé ráð fyrir að sjóðurinn geri sömu kröfur til ábyrgðarmanna og aðrar lánastofnanir. Við vitum öll hvaða kröfur bankakerfið gerir til ábyrgðarmanna sinna. Geta þeirra til að standa við skuldbindingar er vegin og metin og þeir ekki teknir gildir sem léttvægir eru fundnir. Það munu allir skilja hvaða afleiðingar slík vinnubrögð munu hafa fyrir jafnrétti nemenda til náms ef námslán velta á efnahag ábyrgðarmanna. Ég tel því að þessi stefnumörkun sé eitthvert alvarlegasta atriði þessa frv. og segi því nei.