Vatnsorka

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 13:13:03 (6165)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti ætlaði að fresta fundi að loknum atkvæðagreiðslum hér í dag en taka þó fyrst fyrir þetta mál og gefa hv. fyrri flm. þess tækifæri til þess að upplýsa með hvaða hætti hann vildi standa að þessu, en ef það á að vera umræða um málið verður henni og það tekið fyrir síðar.