Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég vil í tilefni af ræðu og tillögu hv. 1. þm. Norðurl. v. taka það fram að ég er tilbúinn til þess hvort sem væri að fallast á þá tilhögun sem hv. 1. þm. Norðurl. v. leggur til, að þessi þáltill. gangi beint til iðnn. eða taka þátt í umræðum um hana. Tel reyndar eins og mál eru í pottinn búin að eðlilegt væri að fallast á tillögu fyrri flm.