Umræður um skýrslur

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 14:25:30 (6170)



     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Svo öllu sé nú haldið til haga vil ég ítreka að við kvennalistakonur höfum á fundum með forseta minnt á þær skýrslur sem óræddar eru og m.a. bent þar á skýrslu um jafnréttismál sem mikilvægt væri að ræða og er raunar lögum samkvæmt áskilið vegna þess að þessi endurskoðun skal fara fram og skýrslan rædd með þessum hætti. Ég vil að þessu sé haldið til haga jafnframt fyrst á annað borð er verið að ræða þessi mál.