Flugmálaáætlun 1992--1995

138. fundur
Laugardaginn 09. maí 1992, kl. 14:08:27 (6235)


     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (um þingsköp) :
    Herra forseti. Eins og textinn er í brtt. er hann í fyllsta samræmi við þær óskir sem mér er kunnugt um að þingmenn í Austurlandskjördæmi hafa farið fram á. Ef hv. þm. telur á hinn bóginn að það muni greiða fyrir afgreiðslu málsins, því að honum er það jafnkunnugt og mér að við erum komnir að lokum þinghalds, að fresta málinu til mánudags, þá er það auðvitað vegur, en ég geri varla ráð fyrir því að peningar vaxi á þeim trjám sem vaxa upp af þessu fræi og þeirri beiðni að umræðu sé frestað að sinni.