Egill Jónsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil enn út af málsmeðferð samgn. ítreka það, sem ég sagði áðan, að um það hefur farið fram umræða í þingmannahópum hvernig flugmálaáætlun hefur litið úr hverju sinni. Eins og ég sagði áðan er það arfur frá fyrri tíð þegar fjárveitingar til flugvalla voru ákveðnar á fjárlögum og skipting fór fram með sama hætti og á öðrum framkvæmdaliðum eins og til hafna, skóla og annarra mannvirkja. Þessir hlutir liggja alveg ljóst fyrir. Það er hins vegar kannski ekki aðalatriði málsins að öðru leyti en því að ef sá háttur hefði verið hafður á hefði þessi flugmálaáætlun verið unnin með þeim hætti sem nauðsynlegt er og sjálfsagt er og samgrn. og samgn. hafði ekki burði til að skila frá sér.