Egill Jónsson :
Herra forseti. Það er fjarri því að ég hafi eitthvað á móti því að tækjageymslunnar sé getið, en þá á að setja hana inn með þeim tölum sem eru við hennar hæfi. Til hennar hefur verið ráðstafað því fjármagni sem áður var búið að ákveða í þverbraut. Það ber því að skila því til baka og inn komi sá texti í flugmálaáætlun sem greinir rétt frá. Svona einfalt er þetta mál.
Hér hefur aðeins blandast inn í þetta mál með ofurlítið gamansömum hætti nafnið á þessum flugvelli. Ég hygg að þessi flugvöllur heiti formlega séð Árnanesflugvöllur og er kenndur við afar merkt höfuðból sem að vísu er núna ekki lengur búseta á, en að því fráslepptu er þetta flugvöllurinn í Hornafirði og tekur hann eðlilega rétt nafn af því umhverfi sem hann er staðsettur í.
En það er líka rétt að vekja athygli á orðum hæstv. samgrh. þar sem hann komst að þeirri niðurstöðu að formlega séð væri nauðsynlegt að setja inn í flugmálaáætlun texta þar sem tækjageymslunnar væri sérstaklega getið og annað væri ekki viðeigandi.
Ég er þakklátur honum fyrir það ef hann ætlar að hafa slíkt form að leiðarljósi í sínum embættisferli, en ég vil hins vegar minna á það að þegar fjárveiting til flugbrautarinnar í Hornafirði var notuð til þess að leggja bundið slitlag á flugvöllinn í Vestmannaeyjum var það gert án þess að breyta texta. Ég veit ekki að sú framkvæmd sé búin að skila því fjármagni aftur til baka. Ég er engan veginn viss um það að það hafi gerst í tíð síðasta hæstv. samgrh. og í þessu felast ekki ávirðingar í hans garð. En ef menn fara hins vegar yfir flugmála- og framkvæmdaáætlun má finna þessum orðum mínum stað. En það er liðin tíð og tjóar ekki um það að erjast.
Út af því sem kom fram hjá 1. þm. Norðurl. v., þá er rétt að það var tekin upp um það umræða og tilefnið var heiman að, það voru starfsmenn Flugmálastjórnar og flugvallarins í Hornafirði sem töldu að það gæti verið betri kostur að leggja þverbrautina, sem á að vera frá suðvestri til norðausturs, að sunnanverðu við Árnanes fremur en að norðanverðu eins og áætlað var. Þeir studdu þetta álit sitt með þeim rökum að þeir teldu sig hafa orðið vara þess að veður væri skaplegra við suðurenda flugvallarins fremur en að norðanverðu.
Munnlega hef ég fengið þá skýringu á þessu, og ég hef fylgst með þessari umræðu, m.a. tekið þátt í fundahöldum um hana austur á Höfn, nánar held ég að ég geti vitnað til að það hafi verið þann 15. des. árið 1990 þar sem var lagður grundvöllur að þessari umræðu og þessari athugun, og mér hefur verið tjáð af starfsmönnum Flugmálastjórnar að sú athugun hafi ekki leitt til þess að ástæða væri til að breyta frá hinni upphaflegu legu flugvallarins. En það fæst betur skýrt.
Aðalatriðið er að þessu máli verði ekki drepið á dreif og ég er þakklátur bæði fyrrv. samgrh. og 1. þm. Norðurl. v. fyrir þann stuðning sem þverbrautin í Hornafirði fékk í þeirra málflutningi áðan. Mér finnst vera mikilvægt að fyrrv. nefndarmaður, ég held það sé breyting frá því sem áður var, í flugráði og fyrrv. samgrh. skuli hafa með svo skýrum og eindregnum hætti lýst yfir stuðningi við þessa þörfu framkvæmd.