Almenn hegningarlög

141. fundur
Þriðjudaginn 12. maí 1992, kl. 16:05:00 (6317)


     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Þar sem þetta er 3. umr. um málið og enn hefur ekki komið fram nein yfirlýsing eða ósk um það frá formanni allshn. að þessari umræðu verði frestað á meðan málið er skoðað betur í allshn. þá vil ég áður en umræðunni er lokið spyrja formann allshn. að því hvort hún sé ekki tilbúin til þess að standa hér að því að umræðu um málið verði frestað og nefndin skoði málið betur. Það verði síðan tekið upp aftur til umræðu.