Halldór Ásgrímsson (andsvar) :
Herra forseti. Það er náttúrlega alveg ljóst að hæstv. utanrrh. skilur þessi samtöl og af því að ég man rétt bréfaskriftir sem áttu sér stað um þessi mál. Ég veit ekki betur en SÍF hafi í höndum bréf frá utanrrn. að því er varðar þetta mál. ( Utanrrh.: Og reglur.) Það virðist vera að hæstv. utanrrh. leggi allt annan skilning í málið en þeir hjá SÍF og það er það alvarlega í málinu. Af hverju í ósköpunum er ekki hægt að ræða þessi mál þannig að fullur skilingur ríki milli aðila? Felst í orðunum að einkaleyfinu verði ekki breytt, að utanrrh. veiti ýmsum aðilum sérstök leyfi til þess að veita aðhald? Ég leyfi mér að spyrja hæstv. utanrrh., hvaða rannsóknir fara fram af hans hálfu áður en hann fer í þessar svokölluðu aðhaldsaðgerðir? Það væri fróðlegt að vita hvernig það á sér stað í utanrrn. Og ég vil enn leggja þá spurningu fyrir hæstv. utanrrh. því að hann hefur ekki svarað henni: Telur hann að íslenskur sjávarútvegur geti búið við hærra og hærra raungengi eins og átt hefur sér stað að undanförnu? Þetta eru ekki mjög margar prósentur en það skiptir allt miklu máli því að hér er um háar útflutningstölur að ræða. Hæstv. utanrrh. hefur alls ekki svarað þessari spurningu í umræðunni.