Varamaður tekur þingsæti

143. fundur
Miðvikudaginn 13. maí 1992, kl. 13:30:35 (6403)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 12. maí 1992:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska eftir því að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Jón Kristjánsson, 2. þm. Austurl.``


    Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er því boðinn velkominn til starfa að nýju.