Rannveig Guðmundsdóttir
:
Virðulegi forseti. Ég er afskaplega ánægð með þau fyrirheit sem birtast í orðum hv. þm. og upplýsi að á þessum morgni hef ég haft gesti á fundi félmn. varðandi frv. um vernd barna og ungmenna og mun sækja það fast að geta afgreitt það á morgun úr nefnd. Ég vil bara láta það koma fram að við höfum verið með stjfrv. undir sem hefur verið mjög mikil vinna við, gestir á fundum nefndarinnar og við höfum tekið þau í þeirri röð sem þau hafa komið inn í nefndina. Hins vegar komu á þessum morgni upplýsingar fram um frv. um vernd barna og ungmenna sem við eigum eftir að vinna úr og gafst ekki tími til.