Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill upplýsa að áður en þingflokksfundir hefjast í dag munu formönnum þingflokka berast drög að dagskrám fyrir þá daga sem eftir eru af þessu þinghaldi og væntir þess að þá hafi menn tækifæri til að líta yfir dagskrárnar og sjá hvernig a.m.k. forseta hefur dottið í hug að væri hægt að standa að málum. Þingflokksformönnum verður því gefinn kostur á því að fjalla um drögin og gera sínar athugasemdir.