Lánasjóður íslenskra námsmanna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 15:38:00 (6538)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en tekin eru fyrir dagskrármálin vill forseti skýra frá því að hún hefur átt fund með formönnum þingflokka, svo og menntmrh. og formanni menntmn. í þessu fundarhléi. Í gær var gert samkomulag milli formanna þingflokka um meðferð lánasjóðsfrv. á þann veg að umræðum yrði frestað um kl. 20.30 í gærkvöldi og umræðum yrði lokið á tveim tímum í dag, milli kl. 1 og 3. Um það er ekki ágreiningur milli þeirra sem á fundinum voru að þetta samkomulag hafi verið gert eða um efni þess. Hins vegar hefur verið óskað eftir nýjun fundi í menntmn. og hefur formaður nefndarinnar fallist á að fundur verði haldinn í nefndinni sem allra fyrst, en að þeim fundi loknum verður málið tekið fyrir samkvæmt því samkomulagi sem fyrir liggur frá því í gær.