Umboðsmaður barna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 17:01:15 (6560)

     Geir H. Haarde (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Til mín hefur verið beint þeirri spurningu hvort stjórnarflokkarnir hafi tekið þá ákvörðun að koma í veg fyrir að þingmannafrv. hljóti afgreiðslu hér á þinginu. Svarið við því er nei. Það hefur engin slík ákvörðun verið tekin.