Lánasjóður íslenskra námsmanna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 18:03:00 (6574)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta þykir mjög miður að hafa ekki getað veitt hv. 3. þm. Norðurl. e. tækifæri til að flytja sitt mál eins og forseti hafði þó boðað hér og vill fara fram á að þeirri þingskapaumræðu sem hér fer fram megi nú ljúka svo að þeir hv. þm. sem ætla að taka þátt í umræðum um lánasjóðsfrumvarpið undir þeim dagskrárlið fái tækifæri til að komast að. Þetta er fróm ósk frá forseta, hvort hv. þm. eru ekki tilbúnir til að draga til baka beiðni um að tala um gæslu þingskapa. --- Það virðist ekki vera og tekur þá til máls hv. 8. þm. Reykn. og talar um gæslu þingskapa.